29.01.2007 00:42:19 / Arni

El finito

Jæja kæru lesendur.

Við strákarnir tókum gott spjall í kvöld og komust að því að þessi síða er bara ekki að gera sig, það er ekkert flóknara en það.

Við ákváðum að slútta þessu, og var sú ákvörðun algjörlega einróma.

Ég veit við lofuðum einhverju ruddalegu kombakki en svo var það bara ekkert ruddalegt. Eiginlega ekkert kombakk bara.

Playerz bloggsíðan yrði 2ja ára á þessu ári og við munum líta aftur til þessa tíma brosandi.

Þakkir til þeirra sem lögðu á sig að heimsækja síðuna reglulega í þessi 2 ár.
Þakkir til foreldra okkar, fyrir að hafa fætt okkur.
Þakkir til vina og vandamanna.
Þakkir til allra sem að fíluðu okkur.
Sérstakar þakkir til /flowerpower_, /zippers og www.drunkcollegegirls.com.

Bestu kveðjur,

Árni, Hólmar, Hafþór, Brynjar og Jökull

- Playerz no more.

(Vá hvað þetta er formlegt, djöfull er maður öflugur penni !)


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 13:56:27 / holmar

Jéss jéss

Já komiði sæl, ég settist nú hérna við lyklaborðið í gær og pikkaði inn svona fínustu færslu en eg gleymdi að gera það í word og þetta fór allt í klessu og blogið og myndirnar sem eg var að setja inn fór allt, en núna var eg að enda við að skella inn myndum úr afmælinu hennar klöru  og svo setti brynjar líka inn í gærkveldi frá því hjá klöru og búa líka svo að nú er ekkert hægt að kvarta yfir myndaskorts. En núna er sunnudagur og stundum hefur mér nú fundist svona sunnudagar leiðinlegir og ekkert að gera en mikið finnst mér gott að geta bara legið heima að gera ekki neitt stundum”

 

 



Helgin var bara mjög góð, afmæli hjá Klöru á Föstudeginum og þar var smá sprell með pakkann hennar en þannig var það að ég hafþor og tryggvi fórum að versla fyrir hana og við vorum nokkrir saman í gjöf og svo fannst ekkert sem okkur hafði verið sagt hún vildi svo við fórum og keyptum gjafabréf en einnig keyptum við ljótustu skó í allri evrópu og þeir kostuðu 99 krónur í Hagkaup “þar sem íslendingum finnst skemmtilegast að versla,, og má með sanni segja að slagorðið hafi ekert logið í þessu tilviki því þetta var alveg neiðarlega fyndið að vera kaupa þetta.. En svo var þessu pakkað inn og hún opnar þetta og allir bíða með mikilli eftirvæntingu og svo koma þessir yndislega gubb ljótu skór á yfirborðið og menn vissu svona ekki alveg hvernig átti að haga sér , hvort þetta væri djók eða bara gjöfin í alvuru en svo fékk hún bara gjafabréfið og hlegið var dátt. Svo var Búi steinn kárason að halda upp á afmælið sitt í götunni fyri neðan og það var kíkt þangað og var bara mjög gaman. Svo gærdagurinn , það er að segja laugardagurinn og hann var þannig að systir mín átti 20 ára afmæli og hélt upp á það á pravda og maður kíkti á það og var bara hörku fjör.

 

 

 



Ætlaði ekkert að hafa þetta neitt langt , bara svona létt að láta vita af ser og svo var þetta afmælisblog alveg að verða helvíti þreytt. Framundan er svo bara bílprófið, önnur hendin er komin á stýrið en það tekur bara alveg skelfilega langan tíma að henda hinni á líka. Þannig er mál með vexti að bóklega gekk eins og í sögu eða kannski ekki en ég náði allaveganna og svo er bara svo mikil bið í þetta verklega og mun eg taka það núna í vikunni sennilegast eða , mjög bráðlega allaveganna.

 

 



Heyrðu svo verð ég bara að setja inn mynd hérna sem náðist af honum tryggva jónssyni ´hjá klöru í gæ en við erum að tala um að þetta móment er alveg rosalegt sko, jökull er eitthvað að sýna sig með hundinn, andrea ný hætt að fitla við typpið á hundinum og beygir sig eitthvða og þá fer bara einhver djöfull í smettið á honum tryggva og það lítur út eins og hann sé gjörsamlega að missa vitið útaf rassinum á andreu. Þetta er klárlega mesta "kodak moment" sem ég hef fest á filmu. En hérna er meistaraverkið ;

 

 

 

Flottur Tryggvi!

 

 

 

 

 

 

 



Segjum þetta gott í bili.

 

 

 


Hólmar Freyr


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 15:12:41 / Jökull

Afmælisstrákur

Hann Hólmar Freyr Sigfússon og Klara ingvars eiga afmæli í dag og við playerz óskum þeim til hamingju með það:D:D

kallinn

´

Hólmar og sólon

 Klarissa


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 01:33:50 / holmar

Skrá nýja færslu í dagbók:

Gott kvöld góðir landsmenn , við erum stödd hér saman á lykilstundu í sögu íslensku þjóðarinnar og það er einmitt á stundum sem þessum sem ég ætti að hætta að reyna vera fyndinn með því að byrja færsluna með einhverju svona rugli.

Jújú mikið rétt svona helsta vandamálið við blogin hjá mer er að byrja þau , reyndar titillinn sem er mér erfiður líka en  þá er alltaf ágætt að gera eitthvað svona kjaftæði og þá ertu nú þegar byrjaður og komin í gang.

 


Þetta mun sennilegast ekkert vera löng færsla hérna en var bara orðinn leiður á því að horfa á flight simulator deluxe edition pakkan þarna án þess að ég móðgi þig nú Jökull , efast ekki um að þetta sé leikur ársins eins og þú orðaðir það. Við erum að tala um bóklegt bílpróf þann áttunda janúar næstkomandi og ég er að verða svona alveg temmilega stressaður og stafar það stress kannski af því að ég ætlaði að læra eins og motherfucker um alla helgina en svo var eg að vinna 9-17 í dag og er sama sagan á morgun , og ég er því ekki búin að komast mikið í bækurnar og verð þá ábyggilega sveittur næstu nótt að læra fer svo í skólan og þarf svo að redda mer úr skólanum í frumherja? Og ég verð örugglega á þessari stundu búin að detta niður dauður úr stressi sko. Ég hef nú hingað til engan veginn verið þessi stressaði fyrir próf og annað en þau próf sem maður hefur tekið í gegnum tíðina eru bara próf , þú færð einkunn kannski er hún góð , kannski léleg. En núna erum við að tala um að ég þarf að ná þessu prófi, ef ég ætla keyra bíl á næstunni eða reyndar ef ég næ því ekki þá fer ég bara eftir viku og tek það aftur en það er ekki eitthvað sem er í stöðunni, eg bara get ekki beðið eftir að labba út og vera búin með þetta, þvílíkur léttir. 

 

 

 

 Drullu gaman að þessu maður

 

 

 

 

 

 




En yfir úr einu í annað lítið búið að ganga á hjá mér þessa dagana, bara svona allt að komast í gang aftur svo sem skólinn , boltinn og fleira. Og ég verð að segja að ég er ekkert að drepast úr leiðindum vegna þess að skólinn sé að byrja aftur, bara fínt að fá smá svona hvað á ég að segja rutínu á allt aftur, ekki bara vaka allar nætur og sofa á daginn og eitthvað heldur bara byrja í skólanum og er stefnan að taka þessa önn með miklum krafti.

 

 


En eg er hættur , ætla kíkja aðeins í ,,Akstur og umferð” áður en ég vankast úr þreytu.

 

 

Hólmar F. Sigfússon.

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 22:10:17 / Jökull

flight simulator scam

jake hérna megin ég er ekki sá reyndasti í bransanum en ætla að skella einu hérna.....Papinos pizza 4 life ég árni og ben erum að chilla hérna hjá ben hafþór er sick og hólmar er að passa og í dag fór ásamt karli óla tryggva við fórum í max og ætluðum að kaupa dvd disk og það var svo lélegt úrval þar þannig að við fórum í elko og þar keyptum okkur dvd og ég keypti mér leik ársins flight simulator deluxe edition sem ég keypti á dýrum dómum en virkar ekki í apple og ég sweet mother of god ertu að grínast..heyrðu við strákarnir við ætlum að láta árslista inna sem er bara nettur

Svikarar!!!!

t-rag


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 09:32:34 / Arni

Menn ekki sáttir

Já menn voru sko alls ekkert sáttir. Eða Ben sagði við mig áðan "hey Árni, þú ert ekki að standa þig" og svo er einhver Aníta Guðlaug ( þekkir einhver hana ?? ) að brúka munn í gestabókinni. Ég varð bara að gjöra svo vel og dúndra einni færslu hérna inn.

Málið með mig sko er að ég á það til að vaka á nóttunni. Og við erum ekkert að tala um til svona 2-3 sem að þótti aðal kalíberið í 7. bekk, nei við erum að tala um til svona 10-11. Þetta er alvöru.

Ég er samt ekkert í neinni 100% vinnu hér á nóttunni, það er ekkert brjálað að gera eða neitt þannig. Ég er nefnilega snillingur í því að finna mér eitthvað að gera.

Í nótt er ég búinn að :

- Fá mér að borða 2svar.

- Lesa öll blogg á Íslandi nema 3.

- Tók léttan Solitaire.

- Leita að snakki í húsinu.

- Svo er ég búinn að tala við Ástu Brá á meðan þessu stendur.

Já eins og þið sjáið er ég búinn að vera iðinn í alla nótt, enda er það best þannig.


Ásta Brá á góðri stundu með syni kóngsins, einnig þekktur sem Bleiki Pardusinn.

Ég er mikið búinn að vera pæla í áramótaheitum. Ég ætla að reyna að minnka gúmmelaðið og komast undir 0,1 tonn að þyngd ( já núna tölum við bara í tonnum hér á Playerz þar sem Benið er kallaður Tonnið ).

Eins og sést hér á þessari mynd var ég orðin mjög slæmur á tímabili.

Djöfull fór jólakalkúnninn illa í mig.

Ég var einmitt að tala við góða vinkonu mína hana Beggu Dé ( fyrró hans Ben en það er samt ekkert vandræðalegt ? ) Við vorum sammála að gamlárskvöld er mesta vonbrigðiskvöld ársins, og klárlega var þetta kvöld vonbrigði, allaveganna frá minum pól.

Ég ætla að henda smá skýrslu um kvöldið.

Kvöldið ( og árið ) byrjaði þannig að Tonnið kíkti til mín um svona 1 leytið og við hringdum í strákanna. Svo vorum við pikkaðir upp af Hólmari og sóttum Jacques eða Jökul og fórum þaðan til Signýjar. Þar var eitthvað létt djúss í gangi og þá ætluðum við eitthvert annað.

Nei ókei sénsinn að ég nenni að lýsa þessu í smáatriðum.

Við fórum allaveganna til Arons Pálmars ( efnilegasti handboltamaður í heiminum ) og þar var nett mikið af liði bara. Love was in the air þarna hjá Aroni og það fóru alveg nokkrir í sleik.

Ég þurfti m.a. meirapróf og BA próf í sálfræði til þess að ná Tonninu og Johnny Christo úr einhverjum ástarleikjum sem að Guðmundur í Byrginu hefur ekki einu sinni prófað.

Eftir að ég hafði náð öllum strákunum í smá team meeting þá fórum við heim til Jökuls þar sem ég stoppaði nú stutt og rölti svo bara heim.

En nú fer pabbi að detta í morgunmat þannig ég er að pæla í að joina gamla bara í Cocoa Puffs og gefa honum klapp á bakið fyrir daginn.

Kannski ekki ferskasta bloggið mitt en eins og góður vinur minn og grallari hann Promoe sagði "it's all about who kicks the lamest shit and gets away with it".

Ætla að láta þessi viskufullu orð verða lokaorð mín hér á nýju ári.

kv.

Dwayne Wade


» 14 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 05:36:03 / Brynjar

"Þegar maður var á sjónum gerði maður sér grein fyrir því hvað maður hefur það gott á landi"

Þegar maður var á sjónum gerði maður sér grein fyrir því hvað maður hefði það gott á landi, þetta sagði merkur maður að nafni Arnar Dan og hver veit nema maður prufi að fara á sjóinn til þess að gera sér grein fyrir þvi.

Arnar dann með pípuna sína.

En já blessuð.

Úff langt síðan maður hefur bloggað maður er kannski farinn að ryðga í þessu en besta segja aðeins frá hvað er í gangi þessa dagana.

 

 



Jólin voru um daginn eins og flestir kannski vita ætla ekkert að vera segja nákvæmlega frá því en þau voru mjög fín.

 

 



Ég hef bara verið að chilla í þessu blessaða jólafríi, sofið lengi og þessháttar, þannig eiga þessi frí að vera. Síðustu tvo daga hef ég reyndar verið að vinna niður á höfn í saltinu eða reyndar var ég að binda saman saltpoka.

 

 



Fór reyndar aðeins í að setja salt í poka og lenti þar í helvítis vesen. Maður á að festa handföngin á pokanum við króka og svo kemur tonn salti niður í vél, en nei hvað heldur að hafi gerst, eitt bandið losnaði frá króknum og fór ekki meira en minna en tonn af salti ekki í pokan og þurfti ég að moka það allt í kar, tonn hugsið ykkur það. Fékk viðurnefnið Tonni frá Hermanni Óla a.k.a Bossinn og Arnar Dan a.k.a Sjóarinn samstarfsmönnum mínum. Fórum á kænuna í hádeginu mæli með þessum stað, meina maður fer bara þangað núna í staðinn fyrir KFC.

 

 



Já hvað er ég búin að vera gera upp á síðkastið.

 

 



Í gær var ég semsagt bara vinna, fór svo í strandgötuna þar sem var verið að kjósa íþróttamann Hafnarfjarðar og verið að heiðra íslandsmeistara. Við urðum Íslands og bikarmeistarar í öðrum flokk þannig verið að heiðra okkur þar. Seinna um kvöldið fór ég til Jónu. Fór síðan aðeins á rúntinn með Axeli og Árna.

 

 



Í dag fór ég bara vinna. Í kvöld komu svo strákarnir og fórum við í pottinn og horfðum á Naco Libre. Vorum einnig að undirbúa nýjan lið á síðunni sem kemur á næstunni.

 

 



Morgundagurinn voða lítið planaður nema sofa eithvað út.

 

 




Lag vikunar "Heart in line" með Togga.

 

Sjáumst.

 



» 6 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 00:36:48 / holmar

Mættir á ný!

Úff maður er bara feiminn eða það liggur við , roosalega er langt síðan maður hefur sest við ritun á nýrri færslu maður. Það er allt of langt síðan og vona eg og við að þetta verði ekki raunin aftur, að playerz menn dragi sig í hlé en allt hafði þetta sínar ástæður , svo sem prófin sem spiluðu stóran leik í því að menn gáfu sér ekki tíma í bloggið enda held eg að ég geti alveg sagt það að þetta borgaði sig því okkur strákunum gekk bara öllum nokkuð vel í þessum prófum. Ég meina kannski einhver nokkur föll á stangli þarna en eg meina það er eins og gengur og gerist. Maður uppsker það sem maður sáir ef við tölum nú í málsháttum.

 

Það hefur ýmislegt gengið á hjá okkur strákunum síðustu vikur og daga, próflok, jólafrí, ökuskólar og vinnan auðvitað. Ef ég tala fyrir mig þá er svona það helsta að maður er að fá bílpróf eftir 14 daga hvorki meira né minna og var ökuskóli 2 tekinn um daginn en við brynjar fórum saman í það og þetta er ekkert það skemmtilegasta en þó gott að vera búinn með þetta og hausinn troðfullur af upplýsingum sem munu vonandi koma að nógu góðum notum og verði svo að maður nái bóklega prófinu en ég ætla einmitt að panta það á morgun og það er ekkert annað í stöðunni heldur en að ná í fyrsta!

 

 

Við strákarnir tókum okkur til um daginn nánar til tekið 11. desember og fórum út að borða á þeim fína veitingastað Ítalíu og voru þar á ferð playerz eins og þeir leggja sig plús tryggvi og sindri sig. Varð þetta bara hin yndælasta kvöldstund og ekki skemmdi fyrir ljúffengur matur, en þessi ferð var farinn aðallega í staðinn fyrir að vera vesenast með jólagjafir milli hvors annars þá bara allir saman út að borða en svo rann þetta einnig aðeins saman við nokkurs konar próflokarhitting en prófin kláruðust einmitt sama dag eða hjá okkur lang flestum allaveganna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo er bara þetta vidieo sem við gerðum eða árni var nú svona aðalmaðurinn í þeirri deild og kom þetta bara mjög vel út að mínu mati , og er núna stefnan bara halda síðunni uppi og hafa hana ferskari en nokkur sinni fyrr og erum við einmitt orðnir fullskipaðir á ný og vil ég nýta tækifærið á að bjóða Árna Grétari velkominn aftur, þetta var ekki eins án þin;)

 

 

 

 

Ætla ekkert að vera draga þetta eitthvað frekar á langin en þetta og segi bara sjáumst bráðlega vonandi og það má nefna að inn koma hér myndir frá Ítalíu innan skamms svo endilega checkið á því.

 

 

Gleðileg jól og hafið það gott í fríinnu.

 

 

Hólmar Freyr Sigfússon. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 03:54:29 / Arni

Comeback

Playerz The Comeback.

Tjekkið á videoinu.

Stay tuned.

» 12 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 23:18:52 / hafthor

GOOD TIMES PLAYERZ

Ég hef ákveðið að henda inn almennilegri færslu svona útaf því að mér leiðist að sjá alltaf sama bloggið þegar ég kem inn. Nú erum við strákarnir búnir að vera að halda þessu uppi í rúmlega ár. Ekki skrýtið að menn séu að verða þreyttir á þessu. Ég ætla að fara aðeins í gegnum súrt & sætt hjá okkur strákunum.

 

 

Þetta byrjaði allt saman í sumarið 05’ en þá ákváðum ég , Hólmar og Brynjar að byrja með það nýjasta, þ.e.a.s. Bloggsíðu, til þess að fá rjóman á vöffluna, fengum við Árna Grétar með í þetta. Að einhverjum ástæðum opinberuðum við ekkert síðuna og gerðum ekkert í þessu fyrr en nokkrum mánuðum seinna, en það var þegar við félagarnir vorum byrjaðir í 10.bekk.

 Þá vorum ég & Hólmar í Víðó en Brynjar & Árni í Setó. Við vorum alltaf saman , þá aðalega um helgar. Við skemmtum okkur alltaf jafn vel saman. Síðan leið aðeins á veturinn og þá var fagmaðurinn Jökull Jónasar alltaf farinn að vera með okkur og var þá alltaf talað um Playerz+jökul, en á þessum tíma var einungis tímaspursmál hvenær jökull ætti eftir að verða einn af okkur, því við litum allir á hann sem einan af okkur.

 

 

Playerz + Jökull

 Síðan loksinns var komið að því að jökull gekk til liðs við okkur. Hann var álitinn eitt mesta efni í bloggheiminum og voru mikið af stór-bloggsíðum á eftir kappanum, en það eina sem hann vildi var að ganga til liðs við Leikmennina.

 Sumarið 06’ var viðburðaríkt hjá okkur strákunum, en við vorum allir hluti af FH liði 3.flokks sem vann m.a. A – Deild & Rey Cup, en töpuðu að vísu úrslitaleiknum á móti Þór Akureyri. Og Ég , Árni og Brynjar vorum allir að vinna saman í knattspyrnuskóla Fh en hinir tveir í Slippi. Um Helgar og eftir vinnu gerðum við svo oftast e-ð skemmtilegt.

Menn komu misvel útúr samrændu prófunum en enginn þó e-ð illa. Brynjar ákvað að sækja um í Verzlo og komst inn en við hinir fórum allir í Flensborg. Þrátt fyrir það héldum við allir áfram að hittast og skemmta okkur.

 Fyrir ekki svo löngu ákvað Árni Grétar að skilja við okkur að sökum anna í skóla og fleiru. Það má segja að það hafi orðið Playerz hópnum að falli hvað duginn við heimasíðuna varðar, en héldum við samt áfram að skemmta okkur.

 Um Þessar mundir held ég að Playerz sé allveg að leggjast í dvala, en það fer allt eftir því hvað menn eru tilbúnir í. Heyrst hefur að “Heimkoma ársins” verði eftir prófinn. Sama hvernig það fer þá eigum við strákarnir alltaf eftir að verða Vinir.

  

2/5 af playerz og Tryggvi góðvinur okkar.

Ben og Jake

Allir Leikmennirnir samankomnir

Rockers

good times

Binna á Hártímabilinu sínu.

Hip Hop

10.bekkur

YEAH X-Playerz

 

 

 

Sæl að sinni. 

 

Hafþór Þrastar. 


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 15:55:42 / hafthor

Nefndarferð

Ætlum koma með Svipmyndir úr Nefndarferð Nff sem farnn var fyrir dáldi löngu.

Fékk myndirnar frá Silju Magg..

Hressi gaurinn

Chick ferðarinnar

ásgeir átti þessa ferð allveg hreint.....

númerið hanns er 6913584 fyrir ykkur stelpur.

Hólmar í pottinum

Við á leiðinni.

Bakkabræður

aftur

Hemmi Factor

Nammi Namm

Elda

Það var dansað

KV.

NFF Boys.


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 11:39:53 / hafthor

gunnsa fimló

Gunnhildur ýr


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 23:32:51 / milo

Gestatvífarar !!

Heyrðu þá er maður aftur á ferðinni hérna .. Maður er gestaplayer eins og ég vill orða það

En hérna ég fann mynd af týnda bróður hans Kalla ( heimski gaurinn í flensborg )

Sko ég veit ekkert um neina mynd af Kalla til að hafa til hliðar við þessa mynd en þið sem vitið hver hann er þið sjáið þetta !!


Gaurinn til hægri ..haha shet þetta er örugglega bara Kalli ?

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 19:20:51 / milo

Gestablogg !!

Gestablogg á Playerz ... gerist það betra maður spyr sig allavega segi e´g nei það gerist ekki betra og er ég nokkuð viss um að þið séuð sammála mér í þeim efnum..

Þetta eru allt mjög svalir náungar en Árni er ekkert svalur lengur , Hættir í heimasíðunni , slær mig þegar ég er sofandi , stelur sætinu mínu í stærðfræði , og ég veit ekki hvað og hvað..

Eins og þið bæði sem skoðið heimasíðuna mína og Sindra zippers hafið væntanlega lesið um Bók sem er í vinnslu en einmitt er ég að skrifa bók með Hafþóri en þessu bók mun eingöngu fjalla um hægðir og þess háttar dásamlegheit en við erum kominr með fullt af efni , myndbönd , reynslusögur , Hólahornið og margt margt fleira ,, mæli með þessari í jólagjöfina..

Forsíðan verður nú flottari en þessi


En svo var ég að búa til uppfinningu en hún er svona að þú þarft ekki að nota hendurnar við að borða Cocoa Puffsið þitt , þú setur einfaldlega skeiðina í gervihönd sem þú festir á öxlina og byrjar að reima skónna , mjólka spenan eða hvað sem er ,, Ef ég verð ekki nógu ríkur eftir bókina okkar þá ætla ég svona án djóks að vera uppfinningar maður t.d myndi ég verða ríkur á þessari uppfinningu sem mun heita Fæðarinn , svo er ég með margt fleira Skeinarinn , Reimarinn , Greiðarinn , Klæðarinn , Rakarinn o.fl. Hann Hóli er búinn að bjóðast til að vera aðstoðarmaður minn en hann borgar mér einungis 500kr. á tímann

Ég og Hóli hérna í ruglinu í den

Svo Liverpool , hver elskar ekki Liverpool , tóku Bordaux easy 3 – 0 , þeir eru komnir á réttu brautina og eru ekki á þeim áttum aað hætta en með nokkrum breyting held ég að ég gæti ennþá séð til þess að þeir vinni Deildina ,
1. Gerrard á miðju !!
2. Reina til spánar og þið vitið hvern í markið !!
3. Haffa Breezer til að fylla þá af baráttuanda
4. Og lemja Ásgeir..


Talandi um Ásgeir ,, pfff hann er svo leiðinlegur leikmaður að ég gæti dáið t.d. á æfingu í gær ég næ boltanum og er að standa upp , þá sparkar hann í magann á mér ? Til hvers .. maður spyr sig ..

En góðar fréttir úr herbúðum Hauka , Hóli og Jökull skrifa undir um helgina , og spurning með metnaðinn í Hafþóri og komi líka með félugunum , svo fréttir með mfl flokkinn , skilst að Þórhallur Dan sé að æfa með þeim og svo er Amir keeper að ná í einhver Serba þarna í Bosníu .. gott það

Heyrðu ég er Emil Alfreð . gleymdi víst að segja frá því .. Svo er það Borat um helgina , mér er án djóks farið bara að hlakka til , þetta verður fyndnasta mynd heims og það er enginn vafi þar á ferð , þetta verður ekki mynd sem á að vera fyndin og er svo ekkert fyndin,, t.d Cheaper By The Dozen á sínum tíma kíktum ég og Haffi Breezer á hana , ég veit ekki hvort Haffi hafi bara verið fullur en hann suðaði lengi vel um að fara á hana .. vonbrigðin voru mikil get ég sagt ykkur

Haffi Breezer

Hef ég eitthvað að segja meira annað en www.blog.central.is/zippers -- nóóóóg þar á bæ til að skoða

En allavega vona að bloggið hafi staðið undir gæðum,, later on it 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3